Hjartanlega velkomin/n í hóp Hjálparliða!
Hver sem er getur gerst Hjálparliði og styrkt verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar með mánaðarlegu framlagi. Það eina sem þarf er bankareikningur eða kreditkort.
Svona skráir þú þig sem Hjálparliða
Þú getur smellt á bláa kassann hér að ofan til að greiða mánaðarlegt framlag þitt með greiðslukorti. Þú getur einnig komið til okkar á skrifstofuna á Háaleitisbraut 66, neðri hæð Grensáskirkju, hringt í okkur í síma 528 4400 eða skrifað okkur tölvupóst á netfangið help@help.is og við skráum þig um hæl.
Upphæð framlags
Hjálparliðar styrkja starfið með mánaðarlegu framlagi að eigin vali. Upphæð framlagsins er hægt að breyta hvenær sem er en algengast er að styrkurinn nemi 2000-2500 krónum á mánuði.
Með þinni hjálp
Hjálparliðar styrkja verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar jafnt innanlands sem utan.
Á Íslandi aðstoðar Hjálparstarf kirkjunnar fólk sem býr við fátækt og félagslega einangrun. Starfið felst í því að greina vandann, veita félagslega ráðgjöf og efnislegan stuðning. Hjálparstarfið leggur ríka áherslu á að tryggja velferð barna og því er sérstaklega hlúð að barnafjölskyldum.
Hjálparliðar styrkja mannúðaraðstoð á hamfara- og átakasvæðum og verkefni í þróunarsamvinnu í Eþíópíu, á Indlandi og í Úganda.
Alls staðar felst í starfinu valdefling sem leiðir til sjálfshjálpar þeirra sem við störfum með og að tala máli þeirra sem í nauðum eru staddir svo samfélagið taki tillit til þarfa þeirra og réttinda og að gripið verði til aðgerða sem breyta lífsmöguleikum þeirra til hins betra.
Breytingar á greiðslu- eða persónuupplýsingum
Þegar þú skiptir um bankareikning eða kreditkort er mikilvægt að þú tilkynnir okkur um það til að styrkur þinn haldi áfram að berast. Öruggasta leiðin til að tilkynna nýjar banka- eða kreditkortaupplýsingar er að hringja í okkur í síma 528 4400 en breytt heimilisfang eða netfang máttu gjarnan tilkynna með því að senda tölvupóst á netfangið help@help.is. Rétt netfang tryggir að fréttabréfið okkar berist þér.
Breyting á mánaðarlegu framlagi
Þú getur alltaf hækkað eða lækkað framlag þitt með því að senda okkur línu á netfangið help@help.is eða með því að hringja í síma 528 4400. Við erum þakklát fyrir framlag þitt!
Að hætta sem Hjálparliði
Þú getur haft samband við okkur í síma 528 4400 eða sent okkur línu á netfangið help@help.is til að láta af mánaðarlegum stuðningi við starfið. Við sendum uppsögn til banka og greiðslukortafyrirtækja um hæl. Við erum þakklát fyrir allan stuðning við starfið!
Fréttabréf til Hjálparliða
Við viljum að sjálfsögðu segja þér fréttir úr starfinu og sendum þér því fréttabréf í tölvupósti um það bil sex sinnum á ári.
Ábendingar og kvartanir
Ef þú vilt koma með ábendingu um hvað megi betur fara eða vilt koma með athugasemd þá hvetjum við þig til þess að senda okkur línu á netfangið help@help.is eða hringja í síma 528 4400.