Nýtt fréttabréf Hjálparstarfsins er komið út. Blaðið er efnismikið og við segjum frá starfinu hér heima og á verkefnasvæðum erlendis.

Í blaðinu er meðal annars fjallað sérstaklega um það að á hverju hausti leita fjölmargar barnafjölskyldur til Hjálparstarfsins þegar skólastarf er við það að hefjast. Ástæðan er einföld og ávallt sú sama. Þau sem minnst hafa handa á milli þurfa aðstoð við að útvega börnum sínum það sem öll börn þurfa þegar skólar hefjast; góða skólatösku, fatnað, ritföng og fleira. Í fyrrahaust leituðu um fjölmargar fjölskyldur til Hjálparstarfsins við upphaf skólastarfs og börnin sem fengu aðstoð voru um 300 talsins.

Í Fréttabréfinu segjum við sögur af fólki í Úganda, Súdan og Eþíópíu þar sem kennir margra grasa.

Ef þú vilt lesa um innlent sem erlent starf Hjálparstarfsins má finna nýja fréttabréfið hér.

Styrkja