Allt árið um kring styður Hjálparstarf kirkjunnar börn og unglinga sem búa við fátækt og eru undir átján ára aldri til íþróttaiðkunar, listnáms og tómstundastarfs.

Foreldrar grunnskólabarna fá einnig sérstakan stuðning í upphafi skólaárs og ungmenni fá styrk til að stunda nám sem gefur þeim réttindi til starfs eða veitir þeim aðgang að lánshæfu námi. Markmiðið er að rjúfa vítahring stuttrar skólagöngu, lágra launa og fátæktar.

Félagsráðgjafar Hjálparstarfsins taka við umsóknum um stuðning vegna upphafs komandi skólaárs dagana 20., 22. og 23. ágúst 2024 eins og hér segir:

Þriðjudaginn 20. ágúst, klukkan 11 – 14.

Fimmtudaginn 22. ágúst, klukkan 11 – 14.

Föstudaginn 23. ágúst, klukkan 10 – 12.

Tekið er við umsóknum á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar, neðri hæð Grensáskirkju, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík.

Þessi styrkur til foreldra grunnskólabarna nýtist þeim sem ekki hafa efni á að kaupa skólatöskur, vetrarfatnað, íþróttavörur og fleira sem til fellur í upphafi skólaárs leik- og grunnskólabarna.

Við tökum jafnframt á móti heilum og hreinum vetrarfatnaði fyrir börnin og vel með förnum skólatöskum hér skrifstofunni á virkum dögum klukkan 10 – 15.

Utan höfuðborgarsvæðisins bendum við fólki á að hafa samband við prest í heimasókn sem hefur milligöngu um aðstoð.

 

Is your child starting school in August?

If you have a child from the age 6-15 years old that is starting in school in August you can apply for a school-start help from us. The school-start help includes the things a child needs for the school.

The school start assistance will be available to apply for the following dates:

  • August 20th from 11:00-14:00.
  • August 22th from 11:00-14:00.
  • August 23rd from 10:00-12:00.

Applications are accepted at our office, lower floor of Grensáskirkja, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík.

This grant for parents of elementary school children is useful for those who cannot afford to buy school bags, winter clothing, sports goods and other things that are required at the beginning of the school year.

We also accept complete and clean winter clothing for the children and well-worn school bags here at the office on weekdays from 10 am to 3 pm.

Styrkja