Stjórn Frímúrarasjóðsins, menningar- og mannúðarsjóðs Frímúrarareglunnar á Íslandi, hefur veitt Hjálparstarfi kirkjunnar veglegan styrk.
Þeir Allan Vagn Magnússon, formaður, og Eiríkur Finnur Greipsson, ritari, komu við á skrifstofu Hjálparstarfsins og afhentu Bjarna Gíslasyni, framkvæmdastjóra Hjálparstarfsins, styrkinn fyrir hönd stjórnar en hann er að upphæð tvær og hálf milljón króna.
Frímúrarareglan á Íslandi hefur veitt starfi Hjálparstarfsins liðsinni sitt mörg undanfarin ár en á afhendingarskjali segir:
„Er það einlæg von okkar að styrkurinn komi Hjálparstarfi kirkjunnar að gagni við hið mikilvæga mannúðar- og hjálparstarf innanlands, sem unnið er á vegum kirkjunnar.“
Frímúrarareglan á Íslandi er sjálfstætt félag eða samtök karlmanna úr öllum hópum þjóðfélagsins sem hefur mannrækt að markmiði. Frímúrarareglan á Íslandi var stofnuð þann 23. júlí árið 1951 en fyrsta frímúrarastúkan var stofnuð hér á landi 6. janúar 1919; það var St. Jóh. stúkan Edda, innan Den Danske Frimurerorden, og starfaði undir hennar vernd allt þar til formleg og sjálfstæð regla var stofnuð.
Hér má lesa allt um innanlandsstarf Hjálparstarfs kirkjunnar.