Eins og mörg undanfarin ár voru umsækjendur um jólaaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar fjölmargir. Þegar allt er talið þrjú undangengin ár sóttu á milli átján og nítján hundruð fjölskyldur um aðstoð Hjálparstarfsins til að geta gert sér dagamun og glaðst um hátíðirnar.

Þegar rýnt er í gögn Hjálparstarfsins um aðstæður fólksins sem leitaði eftir aðstoð kemur í ljós að mikill meirihluti býr í leiguhúsnæði. Langstærsti hópurinn leigði íbúð á almennum markaði. Nú sem fyrr blasir því við að húsnæðiskostnaður er meginástæða þess að fólk nær ekki endum saman. Aftur og aftur sjá félagsráðgjafar Hjálparstarfsins dæmi þess að þegar húsaleiga hefur verið greidd stendur aðeins lítill hluti greiddra launa eftir.

Þetta er þó ekkert nýtt. Svo langt sem horft er aftur koma sömu ástæður í ljós fyrir bágri stöðu fólks. Því er fólk sífellt að glíma við sömu draugana sem er ekki síst ógnarhár húsnæðiskostnaður.

Börnin ganga fyrir

Sú regla er viðhöfð hjá Hjálparstarfinu við útdeilingu aðstoðar á aðventunni að barnafjölskyldur ganga fyrir við úthlutun. Því stendur stór barnahópur að baki þeim umsóknum sem Hjálparstarfinu berast á aðventunni. Það er reynsla félagsráðgjafa Hjálparstarfsins að hið minnsta séu þrjú börn að meðaltali að baki hverri fjölskyldu sem fær aðstoð. Kemur það til vegna þess að allstór hluti þeirra fjölskyldna sem fá aðstoð, eða vel rúmlega 40%, eru af erlendum uppruna og margar þeirra barnmargar. Má hiklaust gera ráð fyrir að um fjögur þúsund manns, börn og fjölskyldur þeirra, hafi notið aðstoðar Hjálparstarfsins fyrir jólin nú og fyrir jólin 2022 og 2023.

Fyrir jólin 2022 sóttu 1.913 fjölskyldur um aðstoð Hjálparstarfsins. Árið 2023 voru fjölskyldurnar 1.860 en 1.809 fyrir nýliðin jól.

Árin þar á undan voru fjölskyldurnar öllu færri eða um 1.400 fjölskyldur að meðaltali á árabilinu 2011 – 2021. Má í samhengi minnast þess að hrunárin 2009 og 2010 leituðu um og yfir 4.000 fjölskyldur til Hjálparstarfsins hvort ár.

Gjafir í þúsunda vís

Eitt af mikilvægustu verkefnum Hjálparstarfsins ár hvert er að miðla fallegum jólagjöfum til barna sem búa við fátækt. Þessi jólin, eins og öll fyrri jól, skipta gjafirnar þúsundum sem starfsmenn og sjálfboðaliðar hafa tekið á móti og miðlað áfram til stórs hóps barna.

Gjafirnar tryggja að undir jólatré í stofu fjölmargra fjölskyldna verður glaðningur sem ekki hefði verið þar að finna að öðrum kosti. Ef nákvæmni er gætt þá voru þær um þrjú þúsund talsins sem voru opnaðar á aðfangadag af um 700 börnum sem búa við fátækt. Forráðamenn barnanna geta valið um tvær til fjórar gjafir fyrir hvert barn; leikfang, bók, spil eða hlýjan fatnað. Því til viðbótar geta margir valið smærri gjafir sem henta vel til þess að setja í skóinn í aðdraganda jóla, þó þær séu ekki taldar með hér.

Styrktarsamfélag Hjálparstarfsins er víðfemt og gjafavara berst til stofnunarinnar jafnt og þétt yfir árið, þó flestar gjafirnar berist Hjálparstarfinu á aðventunni. Þær berast frá einstaklingum, hópum sem koma saman í félagsstarfi hvers konar, fyrirtækjum og mörgum fleirum. Vinna við undirbúning jólagjafaúthlutunar hefst mörgum vikum fyrir jól og að því starfi kemur hópur sjálfboðaliða í samstarfi við starfsfólk Hjálparstarfsins.

 

Styrkja